13. mars 2015

Pítsuveisla hjá yngri flokkum Harðar í handbolta

Á fjórða tug krakka mættu í pítsuveislu yngri flokka Harðar í handbolta í gær og tóku þátt í spurningakeppni með glæsilegum vinningum.

Í gær var haldin pítsuveisla hjá yngri flokkum Harðar í handbolta. Á fjórða tug krakka mættu, gæddu sér á pizzum og tóku þátt í spurningakeppni þar sem voru glæsilegir vinningar fyrir sigurvegarana.

Húsið sá um að útvega húsnæði og mat, en Hamraborg og Samkaup gáfu glæsileg verðlaun fyrir spurningakeppnina. Félagið þakkar Húsinu, Samkaupum og Hamraborg fyrir hjálpina.

Grétar þjálfari þakkar krökkunum fyrir komuna.