19. sep. 2022

Hörður tekur á móti KA í fyrsta heimaleik í efstu deild

Hörður leikur fyrsta heimaleik sinn í efstu deild fimmtudaginn 22. september klukkan 18:00 á Torfnesi gegn KA frá Akureyri og er frítt inn.

Á fimmtudaginn kemur verður fyrsti heimaleikur Harðar í vetur, og jafnframt fyrsti heimaleikur félagsins í efstu deild. Andstæðingarnir eru KA menn frá Akureyri.

Leikurinn fer fram fimmtudaginn 22. september klukkan 18:00 á Torfnesi. Frítt er inn eins og vanalega.

Fyrir leik verða hamborgarar og gos í boði fyrir 1.000 kr. Félagið hlakkar til að sjá sem flesta á fimmtudaginn.