16. sep. 2022

Hörður mætir Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda í kvöld

Í leikmannahópi Harðar í kvöld eru 10 leikmenn úr liðinu sem endaði í neðsta sæti 2. deildar karla 2019-2020, og mótherjinn er Valur á Hlíðarenda.

Í liðinu sem lenti í neðsta sæti 2. deildar karla 2019-2020 voru 10 leikmenn sem verða á skýrslu í kvöld. Tveir af þjálfurum kvöldsins tóku einnig þátt þá, þannig að 12 aðilar úr því liði eru á skýrslu. Mótherjinn í kvöld er Íslandsmeistarar Vals á Hlíðarenda.

Í liði kvöldsins eru 8 uppaldir heimamenn og 3 lettneskir leikmenn sem hafa verið 2-3 ár á Ísafirði. Tadeo Salduna hefur verið þrjú ár á Ísafirði og Mikel Amilibia tvö ár hjá félaginu. Tveir tvítugir efnilegir leikmenn komu í sumar frá Spáni og Frakklandi og einn leikmaður kemur í gegnum samstarf við Wakunaga. Fimm eru skráðir sem starfsmenn, frá fjórum löndum: Danmörku, Spáni, Brasilíu og Íslandi.

Markmenn: Rolands Lebedevs (12) og Stefán Freyr Jónsson (69). Útileikmenn: Sudario Eiður Carneiro (3), Guntis Pilpuks (5), Tadeo Salduna (9), Óli Björn Vilhjálmsson (17), Hika (18), Mikel Amilibia (21), Elías Ari Guðjónsson (22), Þráinn Ágúst Arnaldsson (25), Endijs Kusners (37), Ásgeir Óli Kristjánsson (44), Daníel Wale Adeleye (45), Jón Ómar Gíslason (47), Victor Iturrino (77) og Noah Bardouh (81). Starfsmenn: Carlos Martin Santos, Anton Freyr Traustason, Stefán Már Arnarson, Patrick Bergmann Kaltoft og Emanuel Augusto Evangelista.