16. sep. 2022

Hörður mætir Val í fyrsta leik í efstu deild í kvöld

Fyrsti leikur Harðar í efstu deild í handknattleik er í kvöld gegn Val í Origo höllinni á Hlíðarenda og hefst klukkan 20:15.

Hörður leikur í kvöld sinn fyrsta leik í efstu deild í handknattleik. Mótherjinn er Valur og fer leikurinn fram í Origo höllinni á Hlíðarenda klukkan 20:15. Leikmenn Harðar keyrðu suður í gær og eru því vel hvíldir fyrir leikinn.

Félagið hvetur alla Harðverja nær og fjær sem gætu komist í Origo höllina til að mæta og styðja liðið. Miðasala er á stubbur.app.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta horft á hann á spiideo rás Vals fyrir 5 evrur. Einnig verður hægt að fylgjast með stöðunni í beinni á HB statz.