14. sep. 2022

Hörður mætir Val á föstudag og KA í fyrsta heimaleik

Fyrsti leikur Harðar á tímabilinu er gegn Val á Hlíðarenda á föstudaginn og fyrsti heimaleikurinn er gegn KA á fimmtudaginn í næstu viku.

Hörður hefur leik á tímabilinu gegn Val á föstudaginn. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda og verður sýndur á ValurTV á YouTube.

Fyrsti heimaleikur Harðar er gegn norðanmönnum í KA á fimmtudaginn í næstu viku.

Félagið hlakkar til að sjá sem flesta í vetur.