2. sep. 2022
Emannuel Augusto Evangelista til Harðar
Brasilíski markvörðurinn Emannuel Augusto Evangelista, 21 árs, er genginn til liðs við Hörð frá LPH Sorocaba og verður tilbúinn í fyrsta leik eftir 2 vikur.

Hörður býður Emannuel Augusto Evangelista velkominn til félagsins. Hann kemur frá toppdeildinni í Brasilíu þar sem hann hefur undanfarið spilað með LPH Sorocaba.
Emannuel er fæddur 29. janúar 2001 og er því 21 árs. Hann er stór og stæðilegur markvörður sem hefur spilað fyrir yngri landslið Brasilíu undanfarin ár. Hann mun mynda markvarðatríó með Rolands Lebedevs og Stefáni Frey Jónssyni.
Harðverjar vonast til þess að hann hjálpi liðinu í baráttunni framundan í Olís deildinni, en ungt lið félagsins á verðugt verkefni fyrir höndum. Emannuel ferðast næstu daga og verður tilbúinn í fyrsta leik eftir 2 vikur gegn Val á útivelli.
