23. jan. 2015
Meistaraflokkur Harðar mætir Vængjum Júpíters í dag kl. 18.30
Meistaraflokkur Harðar spilar við Vængi Júpíters í dag kl. 18.30 og aftur á morgun, laugardag, kl. 11.30; minnst verður Hermanns Níelssonar fyrir leik.
Meistaraflokkur Harðar spilar við Vængi Júpíters í dag klukkan 18.30. Leikurinn er fyrri leikurinn af tveimur um helgina. Seinni leikurinn fer fram á morgun, laugardag, klukkan 11.30.
Fyrir leikinn verður mínútuþögn til minningar um Hermann Níelsson, fyrrverandi formann Harðar. Leikmenn munu spila með sorgarbönd.