22. jan. 2015

Hermann Níelsson, fyrrverandi formaður Harðar, er látinn

Hermann Níelsson, formaður Harðar til langs tíma, er fallinn frá 66 ára að aldri.

Hermann Níelsson, formaður Harðar til langs tíma, er fallinn frá 66 ára að aldri.

Hermann var einn þeirra sem hélt félaginu á floti og bar uppi starfsemi þess svo árum skipti. Hann var góður félagi og spor hans sjást víða í íþróttahreyfingunni. Hermanns verður sárt saknað innan hreyfingarinnar sem utan.

Handknattleiksdeild Harðar vottar aðstandendum og vinum Hermanns samúð sína.