22. jan. 2015
Handbolta janúar heldur áfram: HM-stofa, æfingar og leikir í Torfnesi
HM-stofan er opin á landsleikjum Íslands, meistaraflokkur Harðar mætir Vængjum Júpíters á föstudag og laugardag og æfingar yngri flokka eru í Torfnesi.
HM-stofa er opin á öllum landsleikjum Íslands á heimsmeistaramótinu og er horft á leikina á risaskjá. Næsti leikur er í kvöld kl. 18:00 þegar Ísland mætir Tékklandi og opnar HM-stofan kl. 17:45. Á laugardag opnar hún kl. 15:45 fyrir leik Íslands og Egyptalands kl. 16:00. HM-stofan er í fyrirlestrarsal í menntaskólanum og er gengið inn vinstra megin.
Á föstudag eru æfingar hjá nokkrum flokkum í Torfnesi. 4. flokkur og 5. flokkur deila salnum milli kl. 16 og 17, en 6. flokkur og stúlknaflokkur milli kl. 17 og 18. Um kvöldið leikur meistaraflokkur Harðar gegn Vængjum Júpíters kl. 18:30 í Torfnesi og eru allir hvattir til að mæta og hvetja Hörð áfram. Á laugardag kl. 11:30 er annar leikur meistaraflokks Harðar við Vængi Júpíters.
Á sunnudag er dagskrá í Torfnesi frá kl. 11 til 16. Foreldrafundur hjá 5. og 6. flokki vegna næsta móts er kl. 11-12. Síðan er 7. og 8. flokkur kl. 12-13, 6. flokkur kl. 13-14, 5. flokkur kl. 14-15 og 4. flokkur kl. 14:30-16. Kveðja frá Grétari þjálfara og Braga formanni.