15. jan. 2015

Gestaþjálfarinn Boris Bjarni með aukaæfingar um helgina

Boris Bjarni kemur til Ísafjarðar í dag og verður með á öllum æfingum um helgina, með aukaæfingum hjá mörgum flokkum.

Hörður fær gestaþjálfara um helgina og því verða aukaæfingar hjá mörgum flokkum. Boris Bjarni kemur til Ísafjarðar í dag og verður með Grétari þjálfara á öllum æfingum helgarinnar.

Fimmtudagur: 4. flokkur kl. 17:10-18:40 á Torfnesi. Föstudagur: 4. flokkur kl. 16:00-17:30 á Torfnesi, stúlknaflokkur kl. 17:30-18:40 á Torfnesi og 5.-6. flokkur kl. 19:30-21:00 í Bolungarvík. Laugardagur: 4. flokkur kl. 9:00-10:30 í Bolungarvík, 5.-6. flokkur kl. 10:30-12:00 í Bolungarvík, stúlknaflokkur kl. 12:00-13:00 í Bolungarvík og 4. flokkur kl. 14:00-15:30 á Torfnesi. Sunnudagur: 5.-6. flokkur kl. 9:00-10:30 á Torfnesi, 4. flokkur kl. 10:30-12 á Torfnesi og 8.-7. flokkur kl. 12:00-13:00 á Torfnesi.

Meistaraflokkur á leik á Torfnesi á laugardag kl. 16:00, strax á eftir æfingu 4. flokks, og annan leik á sunnudag kl. 14:00. Þjálfarinn minnir alla á að horfa á sem mestan handbolta á HM, þar sem íslenska landsliðið hefur leik á föstudaginn.