7. jan. 2015

Hörður tilnefnir Sigurð Óla og Elías Ara í kjöri Ísafjarðarbæjar

Hörður tilnefndi Sigurð Óla Rúnarsson sem íþróttamann ársins og Elías Ara Guðjónsson sem efnilegasta íþróttamanninn í kjöri Ísafjarðarbæjar.

Í kjöri Ísafjarðarbæjar á íþróttamanni ársins tilnefndi Hörður Sigurð Óla Rúnarsson, glímukappa og handknattleiksmann. Sigurður Óli hefur undanfarið ár æft af miklu kappi og spilaði og keppti með Herði fyrripart árs. Hann er nú á tímabundnum félagsskiptum hjá Ikast í Danmörku.

Tilnefning félagsins um efnilegasta íþróttamanninn fékk Elías Ari Guðjónsson, en hann er ávallt kallaður Elli. Hann hefur vaxið mikið á árinu og verið sífellt að bæta sig. Hann mætir undantekningalaust á æfingar, dregur félaga sína áfram og er ávallt tilbúinn að leggja á sig vinnu fyrir félagið.

Félagið á sem betur fer fjölmarga á svipuðum slóðum og Sigurður Óli og Elías Ari. Þeim tveimur og öllum öðrum fyrirmyndariðkendum Harðar eru færðar hamingjuóskir með tilnefningarnar.