6. jan. 2015

Aukabúningar komnir og æfingabolir í næstu viku

Aukabúningar fyrir þá sem náðu ekki mátun í haust eru komnir og iðkendur frá 6. flokki og uppúr fá æfingaboli í næstu viku.

Aukabúningarnir eru loksins komnir fyrir þá sem náðu ekki mátun í haust. Grétar þjálfari verður með þá á næstu æfingum.

Jafnframt fá allir iðkendur frá og með 6. flokki og uppúr æfingaboli í næstu viku. Það er gert til að allir séu eins á æfingum og til að auka samkennd iðkenda.