15. júlí 2022

Fuchse Berlin vill fá Endijs Kusners til æfinga

Þýska stórliðið Fuchse Berlin hefur falast eftir því að fá Endijs Kusners, miðjumann Harðar, til æfinga næstu daga.

Þýska stórliðið Fuchse Berlin hefur falast eftir því að fá Endijs Kusners til æfinga næstu daga. Endijs er afar efnilegur miðjumaður og er með langtímasamning við Hörð næstu 2 árin.

Endijs á fjölda landsleikja að baki fyrir Lettland þrátt fyrir ungan aldur. Hann er tilbúinn í slaginn í Olís í september.

Hörður óskar Endijs góðs gengis í Berlin og hlakkar til að sjá hann á parketinu á Torfnesi.