15. júlí 2022
Þrír Harðverjar í A-landsliðshópi Lettlands
Rolands Ļebedevs, Guntis Piļpuks og Endijs Kušners eru í A-landsliðshópi Lettlands sem er við æfingar í Lettlandi.

Þrír Harðverjar eru í A-landsliðshópi Lettlands sem var valinn á dögunum og er nú við æfingar í Lettlandi. Rolands Ļebedevs markvörður er valinn eftir miklar bætingar undanfarin ár. Guntis Piļpuks er í hópnum eins og svo oft áður og Endijs Kušners líka.
Hjá félaginu grunar menn að ekkert íslenskt félagslið hafi áður átt þrjá A-landsliðsmenn annarra þjóða í sínum röðum á sama tíma. Fyrrverandi leikmaður félagsins, Raivis Gorbunovs, var einnig valinn, en hann er í dag leikmaður Bergsoy í Noregi.
Á myndinni sem fylgdi færslunni eru Guntis og Rolands í æfingabúðunum.