15. júlí 2022

Victor Peinado Iturrino genginn til liðs við Hörð

Línumaðurinn Victor Peinado Iturrino, sem kemur frá Benidorm, hefur skrifað undir 2 ára samning við Hörð og leikur í Olís deild karla.

Línumaðurinn Victor Peinado Iturrino er genginn til liðs við Hörð fyrir baráttu vetrarins í Olís deild karla. Hann er 201 cm á hæð, stór og stæðilegur línumaður, og kemur til félagsins frá Benidorm.

Victor mun fylla skarð Kenya Kasahara, sem gekk til liðs við Grupa Azoty Unia Tarnów í Póllandi fyrr í dag.

Victor hefur skrifað undir 2 ára samning við félagið. Hann þykir einkar efnilegur leikmaður og félagið bindur vonir við að hann vaxi og dafni með því á næstu árum í Olís deildinni.