24. des. 2014

Æfingatímar Harðar í handbolta yfir jól og áramót

Hörður handbolti óskar gleðilegra jóla og birtir æfingatíma frá 28. desember til 2. janúar.

Hörður handbolti óskar Harðverjum, sem og öðrum landsmönnum, gleðilegra jóla. Sunnudaginn 28. desember eru æfingar sem hér segir: 7. og 8. flokkur kl. 12-13 (7. flokkur er 2006 og 2005, 8. flokkur er 2007, 2008 og 2009), 5. og 6. flokkur kl. 13-14 (6. flokkur er 2004 og 2003, 5. flokkur er 2002 og 2001) og 4. flokkur kl. 14-16 (2000, 1999, 1998). Meistaraflokkur æfir sunnudaginn kl. 14-16 og er það jólabolti.

Mánudaginn 29. desember æfa 4. flokkur og meistaraflokkur kl. 20:40. Þriðjudaginn 30. desember æfir 4. flokkur kl. 16:00-17:20.

Frí er 31/1 jan. Föstudaginn 2. janúar æfir 5. flokkur kl. 16-17, 6. flokkur kl. 17-17:50 og stúlknaflokkur kl. 17.50-18.40.