24. okt. 2014
Æfingatímar og aldursflokkar handboltans hjá Herði
Birt hefur verið skipting í flokka eftir fæðingarári og æfingatímar hvers flokks, og æfingagjöld verða rukkuð í byrjun nóvember.
Mfl. og 2. fl. eru fyrir iðkendur eldri en 4. fl. Í 4. fl. karla eru iðkendur fæddir 1998, 1999 og 2000. Stúlknaflokkur er fyrir árin 2001 til 2004. Í 5. fl. karla eru iðkendur fæddir 2001 og 2002 og í 6. fl. karla 2003 og 2004. Í 7. fl. karla og kvenna eru iðkendur fæddir 2005 og 2006 og í 8. fl. karla og kvenna 2007, 2008 og 2009, en þar er aldursskipt innan flokksins.
Allir nýir iðkendur fá Harðarbúning þegar þeir hafa greitt æfingagjöld. Æfingagjöld verða rukkuð í byrjun nóvember. Þeir iðkendur sem þurfa nýja búninga eiga að snúa sér til stjórnar félagsins.
Æfingatímar: Mfl. og 2. fl. æfa á mánudögum 21.20-22.40 og fimmtudögum 20:40 – 22:00. 4. fl. (1998/1999/2000) æfir á þriðjudögum kl 19:10-20:40, fimmtudögum kl 17:10-18:40, föstudögum kl 15.45-17.00 og sunnudögum kl 14-16. Stúlknaflokkur æfir á þriðjudögum kl.15-16 og föstudögum kl.17:50-18:40. 5. fl. (2001/2002) æfir á þriðjudögum kl. 15-16, miðvikudögum kl. 15.20-16.30, föstudögum kl. 17.00-17.50 og sunnudögum kl. 13-14. 6. fl. (2003/2004) æfir á þriðjudögum kl. 14–15, miðvikudögum kl. 14-14.40 og föstudögum kl. 17.00-17.50. 7. fl. (2005/2006) æfir á miðvikudögum kl. 14.40-15.20 og 8. fl. (2007/2008/2009) á sunnudögum kl 12-13.