6. okt. 2014

Stelpum í 5.–8. bekk boðið á æfingu á þriðjudag

Á morgun, þriðjudag, verða æfingar hjá 6. flokki kl. 14–15 og 5. flokki kl. 15–16 og stelpum í 5.–8. bekk er boðið að koma á æfingu á sama tíma.

Á morgun, þriðjudag, er æfing hjá 6. flokki kl. 14–15 og hjá 5. flokki kl. 15–16. Á sama tíma er stelpum í 5.–8. bekk boðið að koma á æfingu.

Stelpurnar verða í öðrum hluta salsins með sérstökum þjálfara. Hvatt er til þess að allar stelpur í 5.–8. bekk líti við og prófi, en félagið ætlar að gera tilraun með stelpuflokkana.