26. sep. 2014

Grétar Eiríksson ráðinn þjálfari hjá handknattleiksdeild Harðar

Grétar Eiríksson hefur skrifað undir eins árs samning um þjálfun hjá handknattleiksdeild Harðar og hefur þegar hafið störf.

Grétar Eiríksson hefur skrifað undir eins árs samning um þjálfun hjá handknattleiksdeild Harðar. Hann mun þjálfa alla flokka félagsins, frá meistaraflokki niður í 8. flokk.

Grétar er boðinn velkominn til félagsins. Stjórn félagsins bindur miklar vonir við hann og að hann nái að efla starfið enn frekar. Grétar hefur þegar hafið störf.