15. sep. 2014

Grétar Eiríksson ráðinn þjálfari allra flokka Harðar

Handknattleiksdeild Harðar hefur samið við Grétar Eiríksson um þjálfun allra flokka félagsins og hefur hann störf í næstu viku.

Handknattleiksdeild Harðar tilkynnir að samningar hafa náðst við Grétar Eiríksson um þjálfun allra flokka félagsins. Grétar mun hefja störf í næstu viku.

Grétar þjálfaði síðast meistaraflokk Fjölnis og hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og unglingum, bæði í þjálfun og félagsmálum. Hann er að klára nám í íþróttafræði og hefur spilað um árabil með meistaraflokki Fjölnis.

Handknattleiksdeildin segist hlakka til að fá Grétar vestur.