26. maí 2014

Ísland mætir Portúgal í æfingaleik á Torfnesi 1. júní

Íslenska A-landslið karla í handknattleik tekur á móti Portúgal í æfingaleik á Torfnesi sunnudaginn 1. júní kl. 16:00 og miðasala hefst á morgun, þriðjudag.

Íslenska A-landslið karla í handknattleik tekur á móti Portúgal í æfingaleik á Torfnesi sunnudaginn 1. júní næstkomandi kl. 16:00. Leikurinn fer fram á sjómannadagshelginni.

Miðaverð er 2000 kr. fyrir fullorðna og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Aðeins takmarkaður fjöldi miða er í sölu.

Miðasala í Neista hefst á morgun, þriðjudag, og stendur til föstudags. Hún verður opin kl. 16-20 alla vikuna og aftur á laugardeginum kl. 10-18 ef ekki verður orðið uppselt.