30. apr. 2014
Fyrsti sigur vetrarins kom í lokaleik hjá 4. flokki eldri
Strákarnir í 4. flokki eldri hjá Herði unnu sinn fyrsta sigur í 1. deild í lokaleik tímabilsins, eftir 21 leik í röð án sigurs.

Strákarnir í 4. flokki eldri hjá Herði léku í vetur í erfiðri 1. deild og höfðu fyrir lokaleikinn leikið 21 leik í röð án sigurs. Í lokaleik tímabilsins kom fyrsti sigurinn í hús. Þjálfarinn segir leikinn þann langbesta í vetur og er mjög stoltur af strákunum.
Foreldrum og öðrum áhorfendum er þakkaður góður stuðningur í stúkunni, Sigfúsi og Svenna er þakkað fyrir dómgæsluna og Aftureldingu fyrir góðan leik. Piltarnir fóru saman út að borða eftir leik í tilefni dagsins, og gleðin skein af hverju andliti.