16. des. 2014
Hringfararnir komnir á DVD með þremur handboltahetjum
Hægt er að panta DVD eintak af þættinum Hringförunum um Aron Pálmarsson, Guðjón Val og Björgvin Pál á 1999 kr. með sendingarkostnaði.

Hægt er að panta DVD eintak af Hringförunum, þætti um Aron Pálmarsson, Guðjón Val og Björgvin Pál. Verðið er 1999 kr. með sendingarkostnaði. Á disknum er fullt af aukaefni, meðal annars hálftíma viðtal við Aron Pálmarsson og fleira. Diskurinn er sagður tilvalin gjöf fyrir íþróttaunnendur.
Í þættinum þeysa handboltahetjurnar Guðjón Valur, Björgvin Páll og Aron Pálmarsson hringinn í kringum landið, kenna krökkum handbolta og safna fé fyrir Barnaspítala Hringsins. Þeir lenda í ýmsum ævintýrum og hlægilegum uppákomum og takast á við erfiðar áskoranir. Atburðarásin er tvinnuð saman við persónuleg viðtöl.
Í viðtölunum gefa þeir innsýn í líf sitt, tala um álagið og stoltið sem fylgir því að spila fyrir landsliðið og deila lífsskoðunum sínum og framtíðarsýn. Þeir sem komu að verkefninu og tóku þátt segja það hafa verið skemmtilegt og gefandi.