9. mars 2014

4. flokkur í þriggja leikja törn fyrir sunnan

4. flokkur Harðar tapaði öllum þremur leikjum sínum fyrir sunnan um helgina, en spilaði vel á köflum, og lokaleikurinn gegn ÍBV fór 17-36.

4. flokkur Harðar fór í þriggja leikja törn suður um helgina. Gísli Jón var fararstjóri og hélt vel utan um hópinn. Úrslitin voru ekki liðinu í hag, en það spilaði vel á köflum. Fyrri hálfleikur gegn Gróttu á föstudag og fyrri hálfleikur í „útileiknum“ gegn ÍBV á laugardag voru í góðu lagi og var liðið tveimur mörkum undir í báðum.

Í síðari hálfleik hallaði undan fæti í báðum leikjum og töpin urðu 11 og 15 mörk. Lokaleikur helgarinnar bar mikil þreytumerki. Liðið skoraði aðeins 6 mörk í fyrri hálfleik en fékk á sig 20, en síðari hálfleikurinn var mun eðlilegri. Lokatölur í „heimaleiknum“ gegn ÍBV í Mýrinni urðu 17-36. Liðið ætlar að taka jákvæðu hlutina úr fyrri hálfleikjunum á föstudag og laugardag með sér og vinna í því sem fór miður.

Hörður þakkar Stjörnumönnum fyrir að útvega keppnisvöll með skömmum fyrirvara svo liðið gæti mætt ÍBV á hlutlausum velli. Gróttu er þakkað fyrir leikinn á föstudag og ÍBV fyrir leiki helgarinnar. Dómurum helgarinnar eru færðar þakkir, sérstaklega þeim Leó Snæ og Andra Helga úr HK sem dæmdu heimaleikinn.