28. feb. 2014

Heimaleikur 4. flokks gegn Selfossi fellur niður vegna færðar

Heimaleikur 4. flokks gegn Selfossi um helgina fellur niður vegna færðar og nýr leikdagur og tími kemur í ljós eftir helgi.

Heimaleikurinn sem átti að vera hjá 4. flokki gegn Selfossi um helgina fellur niður sökum færðar. Nýr leikdagur og tími kemur í ljós eftir helgi.

4. flokkur heldur hins vegar suður í þriggja leikja keppnisferð næstu helgi. Liðið leikur gegn Gróttu og tvo leiki gegn ÍBV á hlutlausum velli.

5. flokkur keppir á öðru móti vetrarins í lok mars og keppir svo á heimavelli fyrstu helgina í maí. 2. flokkur leikur síðustu tvo leiki tímabilsins gegn ÍBV á hlutlausum velli á höfuðborgarsvæðinu aðra helgina í apríl. Engir leikir eru á dagskrá hjá flokknum fram að þeim tíma.