11. feb. 2014
Töp hjá 2. flokki og 4. flokki Harðar á heimavelli
Hörður lék í 2. flokki og 4. flokki á heimavelli um helgina og tapaði 21-35 gegn Stjörnunni og 24-36 gegn Fjölni.

Hörður lék í 2. flokki og 4. flokki á heimavelli um nýliðna helgi. Yngri hópurinn tapaði 21-35 gegn Stjörnunni. Gísli Jón og Bragi Rúnar stýrðu liðinu í fjarveru Ingvars Arnar.
Síðari leikur dagsins var leikur 2. flokks gegn Fjölni. Gestirnir unnu sanngjarnan 24-36 sigur og tapaðist leikurinn í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var mun skárri.
Félagið hvetur til þess að menn standi saman á lokaspretti tímabilsins.
