2. feb. 2014

Erfiðir leikir gegn FH í 4. flokki og 2. flokki

Hörður lék tvo leiki gegn FH. Í 4. flokki skoruðu strákarnir 10 mörk á 50 mínútum og í 2. flokki varð niðurstaðan 26-37 tap.

Leikir dagsins gegn FH voru erfiðir. Fyrri leikurinn, í 4. flokki, gekk ekki nægilega vel og skoraði Hörður aðeins 10 mörk á 50 mínútum. Síðari leikurinn, í 2. flokki, var betri og munaði tveimur mörkum í hálfleik. Leikurinn tapaðist þó 26-37, en piltarnir gerðu allt sem þeir gátu til að halda sér í leiknum og töpuðu að lokum fyrir betra liði.

Mikil batamerki sáust á liðinu eftir að Axel, Stefán og Baldvin komu inn í það. Jens stóð í markinu lengst af í 2. flokki og lék auk þess allan leikinn í 4. flokki. Arnar sá um aðstoðarþjálfun og stóð sig með prýði að venju. Lena og Bergrín voru á klukkunni og stóðu sig vel. Svenni, Sævar, Atli og Halldór dæmdu leikina og er þeim þakkað fyrir góða dómgæslu.

Áhorfendur voru frábærir í síðari leiknum og FH-ingum er þakkað fyrir leikina. Nú þurfa allir að spýta í lófana og klára tímabilið á skemmtilegan hátt.