25. jan. 2014
Fjögurra marka tap gegn ÍR í hörkuleik
Hörður tapaði með fjórum mörkum í seinni leik helgarinnar gegn ÍR eftir hörkuleik, en mikil bæting varð í leiknum frá fyrri leiknum.

Leikjum helgarinnar gegn ÍR er lokið. Mikil bæting varð í leiknum í dag en eftir hörkuleik varð fjögurra marka tap niðurstaðan. Eftir leikinn tekur við menningarlegt kvöld í höfuðborginni.
Lánsmennirnir Baldvin og Stefán léku sinn fyrsta leik fyrir félagið og féllu vel inn í hópinn.
Hörður lék jafnframt í fyrsta sinn í nýju Harðarbúningunum, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Í færslu félagsins segir að gamlir og góðir Harðverjar ættu að vera mjög stoltir af búningunum.


