12. des. 2013
4. flokkur Harðar mætir Gróttu í síðasta deildarleik fyrir jól
4. flokkur Harðar tekur á móti Gróttu í Torfnesi sunnudaginn 15. desember kl. 14:00 og jólamjúkboltamót allra flokka fer fram 18. desember.
Síðasti leikur deildarinnar fyrir jól verður næstkomandi sunnudag, 15. desember, þegar 4. flokkur Harðar tekur á móti Gróttu. Leikurinn hefst kl. 14:00 í Torfnesi og eru allir hvattir til að koma og fylgjast með.
Lokahnykkurinn fyrir jólin er jólamjúkboltamót allra flokka kl. 17:20-20:00 miðvikudagskvöldið 18. desember. Allir eru velkomnir að fylgjast með. Mótið hefur verið haldið árlega undanfarin ár og alltaf myndast mikil og góð stemning. Leikið er í blönduðum liðum þar sem þeir elstu eru með yngri iðkendum í liði.