17. maí 2013
Handboltafjör á laugardag kl. 16:00 – allir velkomnir
Hörður hvetur stelpur og stráka til að koma í handboltafjör á laugardag klukkan 16:00, en áður er hægt að fara á BÍ/Bolungarvík-Þróttur.

Handknattleiksdeild Harðar hvetur alla til að mæta um helgina. Stelpur og strákar eru velkomin og byrjar viðburðurinn kl. 16:00 á laugardag.
Hvatt er til þess að fara fyrst á BÍ/Bolungarvík-Þróttur og kíkja svo í smá handboltafjör. Að æfingunni lokinni ná allir að horfa á Eyþór Inga og félaga í Malmö.