16. nóv. 2013
4. flokkur tapaði fyrir Þrótti á laugardag
4. flokkur átti ekki sinn besta dag gegn Þrótti á laugardag; hálfleikstölur voru 23-6 og lokatölur 44-21.
4. flokkur átti ekki sinn besta dag á laugardaginn þegar liðið mætti Þrótti. Liðið mætti ekki til leiks í fyrri hálfleik og hálfleikstölurnar voru 23-6.
Mikið var rætt í langri hálfleiksræðu og í kjölfarið var ákveðið að spila maður á mann vörn allan síðari hálfleikinn. Hann endaði 21-15 og var leikur liðsins allt annar. Lokatölur urðu 44-21.
Næsta verkefni liðsins er leikur gegn Selfossi. Vonast er til að leikmenn verði með hugann kláran í þann leik.