9. okt. 2013
4. flokkur Harðar leikur gegn FH og Fram um helgina
4. flokkur Harðar heldur suður um helgina og leikur gegn FH í Kaplakrika laugardaginn 12. október kl. 14:15 og gegn Fram í Safamýri á sunnudag kl. 15:00.
Fyrsta ferð vetrarins verður farin um helgina þegar 4. flokkur Harðar heldur suður til að leika tvo af tólf útileikjum sínum í efstu deild þessa aldursflokks.
Laugardaginn 12. október leikur liðið gegn FH í Kaplakrika kl. 14:15. Á sunnudaginn er leikur í Safamýri gegn Fram kl. 15:00.
Fyrstu heimaleikir vetrarins verða helgina 26.-27. október. Þá leika bæði 2. flokkur og 4. flokkur fyrir framan vonandi fjölmarga vestfirska stuðningsmenn.