3. okt. 2013
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari heimsótti Hörð
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari stýrði tveimur æfingum hjá Herði og um 60 krakkar og unglingar tóku þátt í heimsókninni.
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari kom í heimsókn til Harðar og stýrði tveimur æfingum. Alls tóku um 60 krakkar og unglingar þátt. Fyrri æfingin var opin öllum og þar mættu rúmlega 30 manns úr 3.-10. bekk til að prófa sig áfram og taka leiðsögn landsliðseinvaldsins.
Seinni æfingin var hörkuæfing fyrir elstu keppnisflokka félagsins. Þar var meðal annars farið í tvö kerfi landsliðsins. Með Aroni í för frá HSÍ var Árni Stefánsson, yfirmaður fræðslu- og útbreiðslumála sambandsins.
Hörður vonast til þess að slíkar heimsóknir verði tíðar á næstu árum, nú þegar handboltinn hefur fest sig í sessi sem jákvæður valkostur í barna- og unglingastarfi á svæðinu. Þeir sem mættu á æfinguna og æfa ekki handbolta hjá félaginu eru hvattir til að prófa, og allir eru velkomnir, líka þeir sem mættu ekki.