30. sep. 2013

Aron Kristjánsson stýrir æfingum í Torfnesi miðvikudaginn 2. október

Aron Kristjánsson, A-landsliðsþjálfari karla, stýrir miðvikudaginn 2. október 2013 opinni æfingu fyrir 3.-10. bekk og æfingu fyrir 2. og 4. flokk í Torfnesi.

Aron Kristjánsson, A-landsliðsþjálfari karla, verður í Torfnesi miðvikudaginn 2. október 2013. Klukkan 16:30-17:45 er opin æfing fyrir 3.-10. bekk og er hún ókeypis. Engrar handboltaþekkingar er krafist á þessu stigi, það þarf bara að mæta og hafa gaman.

Klukkan 18:00-19:40 er æfing fyrir elstu keppnisflokka félagsins, 2. flokk og 4. flokk.

Allir eru hvattir til að nýta sér reynslu eins af færustu, virtustu og lærðustu þjálfurum félagsins. Foreldrar eru velkomnir að mæta og fylgjast með, og allir eru velkomnir.