23. sep. 2013
Aron Kristjánsson stýrir tveimur æfingum hjá Herði 2. október
Aron Kristjánsson, A-landsliðsþjálfari karla, kemur í heimsókn miðvikudaginn 2. október og sér um tvær æfingar.
Aron Kristjánsson, A-landsliðsþjálfari karla, kemur í heimsókn miðvikudaginn 2. október og sér um tvær æfingar.
Fyrri æfingin hefst kl. 16:30 og er opin öllum krökkum í 5.-10. bekk. Seinni æfingin hefst kl. 18:00 og er fyrir 2. og 4. flokk, en þar er áherslan á elstu keppnisflokkana.
Allir eru hvattir til að mæta og prófa handbolta undir leiðsögn landsliðsþjálfarans.