9. maí 2022

Þrír leikmenn skrifa undir áframhaldandi samning við Hörð

Mikel Amilibia, Suguru Hikawa og Tadeo Salduna hafa allir skrifað undir áframhaldandi samning við Hörð fyrir næsta tímabil.

Handknattleiksdeild Harðar tilkynnir að Mikel Amilibia, Suguru Hikawa og Tadeo Salduna hafi allir skrifað undir áframhaldandi samning við félagið fyrir næsta tímabil.

Mikel kom frá Spáni og Hika kom frá Japan síðasta haust. Þeir voru virkilega góðir liðsmenn og stóðu sig frábærlega í vetur.

Tadeo kom frá Argentínu fyrir þremur árum og hefur því fylgt liðinu úr neðstu deild í þá efstu. Í færslunni segir að hann sé orðinn svo mikill Ísfirðingur að hann viti ekki einu sinni til hvers lyklar eru notaðir lengur.