7. apr. 2022

Hörður hrósar stuðningsmönnum sínum

Hörður segist með stolti vera með eitt af bestu, ef ekki bestu, stuðningsmönnum landsins og hlakkar til að sjá þá aftur á morgun.

Handknattleiksdeild Harðar segist með stolti geta sagt að hún sé með eitt af bestu, ef ekki bestu, stuðningsmönnum á landinu.

Deildin hlakkar til að sjá alla aftur á morgun í sömu stemmingu og síðasta sunnudag, ef ekki betri. Skilaboð félagsins eru: Ein heild, eitt lið, HÖRÐUR.