5. mars 2022
Hörður vann Berserki 38-22
Hörður vann Berserki 38-22 í gær og næsti leikur liðsins er gegn Selfossi U sunnudaginn 12. mars kl. 15.30 á Selfossi.

Hörður vann í gær sigur á Berserkjum og urðu lokatölur 38-22. Jón Ómar Gíslason var markahæstur hjá Herði með 9 mörk, Óli Björn skoraði 7 mörk og Guntis Piļpuks 6 mörk.
Hinn 16 ára gamli Harðverji Guðmundur Brynjar Björgvinsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir meistaraflokk. Félagið þakkar öllum sem komu á leikinn og þeim sem fylgdust með á YouTube.
Næsti leikur Harðar er gegn Selfossi U sunnudaginn 12. mars kl. 15.30 á Selfossi.