25. feb. 2022
Hörður mætir FH á Torfnesi laugardaginn 26. febrúar
Strákarnir í Herði mæta FH á Torfnesi laugardaginn 26. febrúar klukkan 14:00 og árituð keppnistreyja verður dregin út klukkan 13:00.

Strákarnir í Herði mæta FH á Torfnesi laugardaginn 26. febrúar klukkan 14:00. Þar sem samkomutakmörkunum hefur verið aflétt geta allir sem vilja komið á leikinn.
Af því tilefni er gjafaleikur í gangi og í pottinum er árituð keppnistreyja frá félaginu. Dregið verður klukkan 13:00 á leikdegi og sá sem vinnur fær treyjuna afhenta fyrir leikinn.
Félagið hlakkar til að sjá sem flesta á Torfnesi. Einkunnarorðin eru: Ein heild, eitt lið, HÖRÐUR!