14. júní 2013

Handboltinn kominn í sumarfrí fram yfir verslunarmannahelgi

Handknattleiksdeild Harðar er komin í sumarfrí og hefst starfið að nýju eftir verslunarmannahelgi.

Handboltinn hjá Herði er kominn í lauflétt sumarfrí. Hjólin fara að rúlla að nýju eftir verslunarmannahelgi.

Handknattleiksdeild Harðar þakkar fyrir tímabilið og óskar öllum farsældar í því sem þeir taka sér fyrir hendur í sumar, hvort sem það eru golfkylfurnar eða annað.

Einkunnarorð deildarinnar eru: Ein heild. Eitt lið. Hörður!