29. nóv. 2021
Leikur á föstudag og hraðpróf í matsal HVest
Hörður á leik á föstudag og hægt verður að fara í hraðpróf í matsal HVest frá klukkan 13 til 15, svo hægt sé að taka á móti fleiri en 50 manns.
Leikur er á föstudaginn. Stemningin á leikjum liðsins hefur verið mjög góð til þessa. Á síðasta leik mættu um 200 manns.
Hægt verður að fara í hraðpróf í matsal HVest á föstudag frá 13 til 15, svo hægt sé að taka á móti fleiri en 50 manns. Kóða fyrir prófið þarf að sækja á vef Heilsuveru eða á vef hraðprófa vegna covid.
Stuðningsfólk er hvatt til að mæta á völlinn og styðja strákana í að halda toppsætinu og vinna áttunda leikinn í röð.