27. nóv. 2021
5. og 6. flokkur unnu deildir sínar á Íslandsmótinu
6. flokkur vann 4. deild með fullu húsi stiga á fyrsta móti sínu og 5. flokkur vann 3. deild með fjórum sigrum úr fimm leikjum.

Um helgina var mikið að gera hjá handknattleiksdeild Harðar. Daginn áður en yngri flokkarnir kepptu spilaði meistaraflokkur við Berserki. Berserkir eru á hinum enda töflunnar en veittu strákunum hörkuleik. Ungir stuðningsmenn á pöllunum létu í sér heyra allan leikinn.
Næsta dag tóku 5. flokkur og 6. flokkur þátt í Íslandsmótinu. 6. flokkur vann fjórðu deild á sínu fyrsta móti og vann alla sína leiki. 5. flokkur vann 3. deild með 4 sigrum úr 5 leikjum.
Deildin óskar strákunum og þjálfurum þeirra til hamingju með árangurinn.
