25. nóv. 2021

Kasa aðstoðaði nemendur í japönskuvali í Grunnskólanum

Kasa tók þátt í kennslu í japönsku vali fyrir 8. til 10. bekk í Grunnskólanum og hjálpaði krökkunum meðal annars með réttan framburð.

Ólöf Dómhildur er með japönsku val í Grunnskólanum fyrir 8. til 10. bekk. Krakkarnir takast þar á við móðurmál Kasa og Hika.

Kasa tók þátt í kennslu dagsins og hjálpaði krökkunum meðal annars með réttan framburð. Hann skemmti sér stórkostlega með þeim og hlakkar til að sjá framvindu þeirra.

Hika var upptekinn í dag og komst því ekki.