16. nóv. 2021

Könnun um fjölgun áhorfenda á handboltaleikjum

Nemandi við Háskólann á Bifröst vinnur að Bc.s ritgerð um hvað handboltalið á Íslandi geta gert til að fjölga áhorfendum á leikjum og óskar eftir svörum í könnun.

Nemandi við Háskólann á Bifröst vinnur að Bc.s ritgerð sinni. Markmið ritgerðarinnar er að komast að því hvað handboltalið á Íslandi geta gert til að fjölga áhorfendum á handboltaleikjum.

Handknattleiksdeild Harðar vill fá að vita hvað fólki finnst og geta þannig unnið í því að gera enn betur á heimaleikjum liðsins. Fólk er hvatt til að svara könnuninni og segir deildin að það taki ekki langan tíma.