21. maí 2013

Fararstjóranámskeið ÍSÍ í Laugardal mánudaginn 3. júní

ÍSÍ býður upp á fararstjóranámskeið í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal mánudaginn 3. júní frá kl. 19 til 21:30 og er það ókeypis.

ÍSÍ býður upp á fararstjóranámskeið í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal mánudaginn 3. júní. Námskeiðið hefst kl. 19 og stendur til 21:30.

Gústaf Adolf Hjaltason sér um fræðsluna og veitir ýmsar gagnlegar upplýsingar til þeirra fjölmörgu foreldra og sjálfboðaliða sem taka að sér fararstjórn innan íþróttahreyfingarinnar.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og fer skráning fram með tölvupósti til ÍSÍ. Félagið hvetur sitt fólk til að kanna námskeiðið.