8. nóv. 2021

Strákarnir hjálpuðu Krafti að búa til „Lífið er núna“ armbönd

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda, hélt vinnudag í stjórnsýsluhúsinu þar sem armbönd voru búin til.

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda, var í dag með „vinnudag“ í stjórnsýsluhúsinu. Þar gat fólk komið og búið til „Lífið er núna“ armbönd.

Armböndin fara í sölu til að fjármagna starfsemi félagsins. Strákarnir okkar mættu á staðinn og aðstoðuðu við verkefnið.