19. maí 2013
Þakkir eftir vel heppnaða helgi með krökkum í handbolta
Hörður þakkar fyrir helgina, þar sem viðtökurnar voru skemmtilegar og jákvæðar og allir fengu jafnan rétt á að spreyta sig, stelpur jafnt sem strákar.
Handknattleiksdeild Harðar þakkar kærlega fyrir helgina en viðtökurnar voru skemmtilegar og jákvæðar. Hrabba, Hildigunnur, Halli, Gulli og Viktor fá mikið hrós fyrir góða nálgun á verkefnið og fyrir að ná vel til krakkanna.
Sumir voru að prófa í fyrsta sinn en aðrir ekki. Það skipti engu máli, því allir fengu jafnan rétt á að spreyta sig og hafa gaman í leiðinni, stelpur jafnt sem strákar.
Félagið þakkar krökkunum fyrir helgina og sendir bestu þakkir til HSÍ fyrir að gera verkefnið framkvæmanlegt. Nú heldur hvítasunnan áfram og fermingarnar taka við.