13. maí 2013
Frítt handboltanámskeið HSÍ á Torfnesi um næstu helgi
Handboltanámskeið á vegum HSÍ verður í íþróttahúsinu Torfnesi næstu helgi, það er frítt og opið öllum óháð því hvort þeir æfi handbolta.
Næstu helgi fer fram handboltanámskeið á vegum HSÍ í íþróttahúsinu Torfnesi. Námskeiðið er frítt og opið öllum, algjörlega óháð því hvort viðkomandi æfi handbolta eða ekki. Þátttakendur fá æfingar undir handleiðslu þjálfara kvennalandsliðsins ásamt nokkrum landsliðsstelpum.
Nánari upplýsingar um tímasetningar og fleira verða gefnar út fyrir helgina og auglýstar í grunnskólum Ísafjarðar og Bolungarvíkur.
Hörður hvetur alla krakka og unglinga til að koma og prófa, og sérstaklega stelpur á öllum aldri. Félagið leggur ríka áherslu á að handboltastarfið sé ætlað báðum kynjum. Þátttakendur eru hvattir til að fá 1-2 vini eða vinkonur með sér.