19. okt. 2021
Sudario Carneiro í landsliðshópi U18 ára karla
Sudario Carneiro er fulltrúi Harðar í landsliðshópi U18 ára karla sem undirbýr þátttöku í Pierre Tiby mótinu í París í byrjun nóvember.

Heimir Ríkarðsson og Gunnar Andrésson, þjálfarar U18 ára landsliðs karla, hafa valið landsliðshóp til æfinga og undirbúnings fyrir þátttöku í Pierre Tiby mótinu í París í Frakklandi í byrjun nóvember.
Hörður á einn fulltrúa í hópnum, Sudario Carneiro. Íslenska liðið heldur utan 3. nóvember og kemur aftur heim 7. nóvember.
Félagið óskar Sudario til hamingju með valið og velfarnaðar.