9. okt. 2021
Sigur á Selfoss U í fyrsta heimaleik og nýtt VIP herbergi opnað
Hörður vann Selfoss U 37-32 í fyrsta heimaleik vetrarins og tók í notkun nýtt VIP herbergi á efri hæðinni.

Í gær var fyrsti heimaleikur Harðar á tímabilinu, gegn Selfoss U. Strákarnir spiluðu flottan leik og unnu 37-32.
Nýtt VIP herbergi á efri hæðinni var tekið í notkun í gær. Þar var meðal annars boðið upp á snittur og fleira fyrir leik, mikið var spjallað og strengir stilltir fyrir veturinn. Fólki verður boðið að kaupa sig í klúbbinn, og verður hamborgari og snittur fyrir leik innifalið. Carlos mun einnig koma og fara yfir leikinn með stuðningsmönnum. Vonast er til að þetta slái í gegn og að fólk hittist fyrir leiki og í hálfleik.
Gísli Jón fékk afhenta fyrstu Harðar bindisnæluna og barmmerkið, sem komu með flugi í gær úr framleiðslu. Fólki verður boðið að kaupa þessa veglegu gripi von bráðar.


